FRÉTT VERÐLAG 13. ÁGÚST 2007

Vísitala neysluverðs í ágúst 2007 er 273,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,04% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,0 stig, lækkaði um 0,37% frá júlí.

Sumarútsölur eru enn í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 6,8% (vísitöluáhrif -0,29%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,5% (0,28%), þar af voru 0,24% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis en 0,04% vegna hækkunar vaxta.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,5%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 5,3% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,1% verðbólgu á ári (1,1% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í ágúst 2007, sem er 273,1 stig, gildir til verðtryggingar í september 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.392 stig fyrir september 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 153,0 153,0 3,4% 3,4%
Þar af:    
Innlendar vörur 130,8 131,2 -3,3% -0,5%
Búvörur og grænmeti 126,8 127,9 -3,0% -0,2%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 133,3 133,1 -3,5% -0,3%
Innfluttar vörur alls 120,2 118,6 -1,0% -0,3%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  116,1 114,4 -1,3% -0,4%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 155,0 155,1 4,8% 4,2%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 155,8 155,9 4,8% 3,9%
Dagvara 124,8 124,8 -3,9% -0,6%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.