FRÉTT VERÐLAG 11. ÁGÚST 2006

Vísitala neysluverðs í ágúst 2006 er 264,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 243,7 stig, hækkaði um 0,28% frá því í júlí.

Verð á dagvörum hækkaði um 0,9% (vísitöluáhrif 0,13%) og viðhaldsliður eigin húsnæðis hækkaði um 3,5% (0,13%).

Sumarútsölur standa enn yfir og lækkaði verð á fötum og skóm um 3,4% (-0,15%). Verð á eigin húsnæði lækkaði um 0,1% (-0,01%) þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,09% og af hækkun vaxta 0,08%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% sem jafngildir 8,1% verðbólgu á ári (7,0% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í ágúst 2006, sem er 264,0 stig, gildir til verðtryggingar í september 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.213 stig fyrir september 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100

Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar

Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100

Breyting síðustu 12 mánuði

Júlí 2006 Ágúst 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 147,4 147,9 8,6% 8,6%
Þar af:    
Innlendar vörur 135,3 135,7 10,0% 1,4%
Búvörur og grænmeti 130,6 131,8 11,9% 0,7%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 138,4 138,0 8,7% 0,7%
Innfluttar vörur alls 120,0 119,7 8,0% 2,7%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  116,2 115,9 8,5% 2,6%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 147,7 148,1 7,6% 6,6%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 148,4 148,7 8,3% 6,6%
Dagvara 128,8 129,9 12,2% 1,8%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.