FRÉTT VERÐLAG 20. DESEMBER 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2013 er 418,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,53% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,8 stig og hækkaði um 0,33% frá nóvember.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,6% á milli mánaða (áhrif á vísitöluna 0,22%) og liðurinn ferðir og flutningar hækkaði um 1,1% (0,18%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 3,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðbólgu á ári (1,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2013 var 412,7 stig, 3,9% hærri en meðalvísitalan 2012. Samsvarandi breyting var 5,2% árið 2012 og 4,0% árið 2011.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2013 var 392,3 stig, 3,8% hærri en meðalvísitalan 2012. Samsvarandi breyting var 5,3% árið 2012 og 3,8% árið 2011.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2013, sem er 418,9 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.271 stig fyrir febrúar 2014.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 233,5 234,7 4,1 4,1
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 212,6 213,3 4,2 0,6
Búvörur og grænmeti 200,4 201,6 5,6 0,4
Innlendar vörur án búvöru 221,3 221,4 2,9 0,2
Innfluttar vörur alls 202,8 203,2 1,2 0,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  194,4 194,8 0,6 0,2
Dagvara 210,2 211,1 3,8 0,7

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.