FRÉTT VERÐLAG 27. ÁGÚST 2015

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 27. ágúst 2015 09:35 frá upprunalegri útgáfu.

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2015 er 432,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,53% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,3 stig og hækkaði hún um 0,50% frá júlí.

Sumarútsölur eru að hluta til gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,4% (áhrif á vísitöluna 0,21%). Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,1% (0,16%) og kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,5% (0,14%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 4,0% (-0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% og vísitala án húsnæðis hefur hækkað um 0,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2015, sem er 432,3 stig, gildir til verðtryggingar í október 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.536 stig fyrir október 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
         
Vísitala neysluverðs 240,9 242,2 2,2 2,2
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 218,4 221,2 4,3 0,6
Búvörur og grænmeti 205,3 210,0 5,5 0,4
Innlendar vörur án búvöru 227,7 228,5 3,2 0,2
Innfluttar vörur alls 192,7 193,1 -3,1 -1,1
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  183,3 183,7 -3,5 -1,1
Dagvara 214,0 216,1 3,5 0,6
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.