FRÉTT VERÐLAG 27. NÓVEMBER 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2013 er 416,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,36% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,5 stig og hækkaði um 0,20% frá október.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,4% á milli mánaða (áhrif á vísitöluna 0,19%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,8% verðbólgu á ári (1,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2013, sem er 416,7 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.228 stig fyrir janúar 2014.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Október Nóvember %
Vísitala neysluverðs 232,6 233,5 3,7 3,7
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 212,0 212,6 4,1 0,6
Búvörur og grænmeti 200,0 200,4 5,2 0,3
Innlendar vörur án búvöru 220,4 221,3 3,2 0,2
Innfluttar vörur alls 202,9 202,8 0,9 0,3
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  194,5 194,4 0,2 0,1
Dagvara 209,9 210,2 3,6 0,6

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.