FRÉTT VERÐLAG 28. ÁGÚST 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2013 er 413,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 392,6 stig og hækkaði um 0,36% frá júlí.

Sumarútsölur eru víða um garð gengnar og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,1% (vísitöluáhrif 0,29%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,9% (-0,19%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 4,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,5% verðbólgu á ári (1,3% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2013, sem er 413,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.170 stig fyrir október 2013.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 231,1 231,9 4,3 4,3
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 210,6 211,5 5,0 0,7
Búvörur og grænmeti 197,5 198,9 4,7 0,3
Innlendar vörur án búvöru 220,0 220,4 5,2 0,4
Innfluttar vörur alls 200,2 201,9 2,5 0,9
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  191,6 193,5 2,0 0,6
Dagvara 209,1 209,8 5,0 0,9

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.