Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2013 er 415,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,2 stig og hækkaði um 0,41% frá ágúst.
Sumarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,1% (vísitöluáhrif 0,30%).
Frá 1. september niðurgreiða Sjúkratryggingar Íslands tannlæknakostnað 3 ára barna og 12-14 ára barna samkvæmt reglugerð nr. 451/2013. Tekið var tillit til þessa við útreikning á vísitölu neysluverðs í september. Kerfisbreytingin leiddi til 4,1% lækkunar á tannlækningalið vísitölunnar (vísitöluáhrif -0,05%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 3,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,7% verðbólgu á ári (0,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2013, sem er 415,2 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.198 stig fyrir nóvember 2013.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2012 | ||||||
September | 399,6 | 0,8 | 9,5 | -0,5 | 2,3 | 4,3 |
Október | 400,7 | 0,3 | 3,4 | 3,6 | 1,3 | 4,2 |
Nóvember | 402,0 | 0,3 | 4,0 | 5,6 | 2,0 | 4,5 |
Desember | 402,2 | 0,0 | 0,6 | 2,6 | 1,1 | 4,2 |
2013 | ||||||
Janúar | 403,3 | 0,3 | 3,3 | 2,6 | 3,1 | 4,2 |
Febrúar | 409,9 | 1,6 | 21,5 | 8,1 | 6,8 | 4,8 |
Mars | 410,7 | 0,2 | 2,4 | 8,7 | 5,6 | 3,9 |
Apríl | 411,5 | 0,2 | 2,4 | 8,4 | 5,5 | 3,3 |
Maí | 411,3 | 0,0 | -0,6 | 1,4 | 4,7 | 3,3 |
Júní | 413,5 | 0,5 | 6,6 | 2,8 | 5,7 | 3,3 |
Júlí | 412,4 | -0,3 | -3,1 | 0,9 | 4,6 | 3,8 |
Ágúst | 413,8 | 0,3 | 4,2 | 2,5 | 1,9 | 4,3 |
September | 415,2 | 0,3 | 4,1 | 1,7 | 2,2 | 3,9 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Ágúst | September | % | ||
Vísitala neysluverðs | 231,9 | 232,6 | 3,9 | 3,9 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur og grænmeti | 211,5 | 211,0 | 4,7 | 0,6 |
Búvörur og grænmeti | 198,9 | 198,1 | 4,8 | 0,3 |
Innlendar vörur án búvöru | 220,4 | 220,3 | 4,6 | 0,3 |
Innfluttar vörur alls | 201,9 | 203,5 | 1,9 | 0,7 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 193,5 | 195,1 | 1,4 | 0,4 |
Dagvara | 209,8 | 209,5 | 4,8 | 0,8 |
Talnaefni