FRÉTT VERÐLAG 19. DESEMBER 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2014 er 422,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,31% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,3 stig og hækkaði um 0,23% frá nóvember.

Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 14,3% (áhrif á vísitölu 0,17%), kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,5% (0,13%) og verð á bensíni og olíum lækkaði um 2,4% (-0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,1% sem jafngildir 0,3% verðhjöðnun á ári (1,4% verðhjöðnun fyrir vísitölu án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2014 var 421,1 stig, 2,0% hærri en meðalvísitala ársins 2013. Samsvarandi breyting var 3,9% árið 2013 og 5,2% árið 2012.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2014 var 395,4 stig, 0,8% hærri en meðalvísitala ársins 2013. Samsvarandi breyting var 3,8% árið 2013 og 5,3% árið 2012.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2014, sem er 422,3 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.338 stig fyrir febrúar 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 235,9 236,6 0,8 0,8
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 211,1 211,6 -0,8 -0,1
Búvörur og grænmeti 195,9 197,0 -2,3 -0,1
Innlendar vörur án búvöru 223,0 222,8 0,6 0,0
Innfluttar vörur alls 198,1 197,4 -2,8 -1,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  188,9 188,2 -3,4 -1,1
Dagvara 207,9 208,5 -1,2 -0,2

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.