FRÉTT VERÐLAG 29. JANÚAR 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2013 er 403,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 384,1 stig og hækkaði um 0,21% frá desember.

Víða eru vetrarútsölur og lækkaði verð á fötum og skóm um 14,1% (vísitöluáhrif -0,77%) og eins lækkaði verð á húsgögnum og heimilisbúnaði um 2,4% (-0,13%).

Verð á tóbaki hækkaði um 17,9% (0,23%), þar af voru 0,12% áhrif vegna hækkunar opinberra gjalda.  Verð á opinberri þjónustu hækkaði um 2,6% (0,21%). Þar af hækkuðu gjöld fyrir sorphirðu, fráveitu og vatn um 7,3% (0,13%). Verð á nýjum bílum hækkaði um 2,9% (0,16%), verð á dagvörum um 0,9% (0,16%) og flugfargjöld um 6,6% (0,12%). Verð útgjaldaliðarins íþróttir, fjölmiðlun og happdrætti hækkaði um 3,2% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 5,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,6% verðbólgu á ári (2,1% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2013, sem er 403,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.963 stig fyrir mars 2013.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012-2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 225,3 226,0 4,2 4,2
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 204,7 206,1 5,7 0,8
Búvörur og grænmeti 190,9 192,2 5,6 0,3
Innlendar vörur án búvöru 215,0 216,6 5,9 0,4
Innfluttar vörur alls 200,8 198,4 3,2 1,2
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  193,7 189,8 2,7 0,9
Dagvara 203,3 205,2 5,0 0,8

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2

Talnaefni

 


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.