FRÉTT VERÐLAG 23. JÚLÍ 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2015 er 430,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,16% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 398,3 stig og hækkaði hún um 0,03% frá júní.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fatnaði og skóm um 11,1% (áhrif á vísitöluna -0,5%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 32,7% (0,45%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% og vísitala án húsnæðis hefur hækkað um 0,4%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2015, sem er 430,0 stig, gildir til verðtryggingar í september 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.490 stig fyrir september 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
         
Vísitala neysluverðs 240,5 240,9 1,9 1,9
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 217,4 218,4 3,1 0,4
Búvörur og grænmeti 204,7 205,3 3,2 0,2
Innlendar vörur án búvöru 226,3 227,7 3,0 0,2
Innfluttar vörur alls 196,1 192,7 -2,9 -1,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  186,8 183,3 -3,2 -1,0
Dagvara 213,2 214,0 2,7 0,4
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.