FRÉTT VERÐLAG 29. OKTÓBER 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október 2014 er 423,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,14% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,8 stig og hækkaði um 0,03% frá september.

Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,5% (áhrif á vísitöluna -0,15%) en kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,4% (0,11%). Flugfargjöld hækka um 11% (0,14%).  Mistök voru gerð við útreikning á verðbreytingu flugfargjalda í vísitölu neysluverðs í september 2014. Áhrif liðarins þá voru -0,52% en hefðu átt að vera -0,35%. Þetta er leiðrétt í útreikningi vísitölunnar nú (áhrif án leiðréttingar -0,03%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,0% verðbólgu á ári (0,9% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Innleiðingu nýs líkans fyrir verðmælingu á símaþjónustu sem tilkynnt var í frétt um vísitölu neysluverðs þann 25. september síðastliðinn hefur verið frestað fram að næstu grunnskiptum í vísitölu neysluverðs í apríl 2015.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2014, sem er 423,2 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.356 stig fyrir desember 2014.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  September Október %
Vísitala neysluverðs 236,8 237,1 1,9 1,9
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 212,1 211,7 -0,1 0,0
Búvörur og grænmeti 198,9 197,7 -1,2 -0,1
Innlendar vörur án búvöru 221,8 222,3 0,9 0,1
Innfluttar vörur alls 199,9 199,2 -1,8 -0,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  190,9 190,1 -2,2 -0,7
Dagvara 208,8 208,6 -0,6 -0,1

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.