Vísitala neysluverðs hækkaði um 11,8% frá apríl 2007 til jafnlengdar í ár. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Verðbólga hefur aukist, sérstaklega það sem af er þessu ári en ein meginástæða þess er mikil lækkun á gengi íslensku krónunnar.
Nú hefur verið gefið út sérstakt hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs frá apríl 2007 til apríl 2008. Í því eru birtar töflur um þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni vísitölunnar í mars 2008. Fjallað er sérstaklega um þriðju kjarnavísitölu neysluverðs, sem reiknuð var í fyrsta sinn í febrúar 2008, þar sem þáttur vaxtabreytinga í húsnæðislíkani vísitölunnar er undanskilinn.
Vísitala neysluverðs apríl 2007-2008 - Hagtíðindi
Talnaefni