Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,6% milli ágúst og september 2018. Sjávarafurðir hækkuðu um 2,9% (áhrif á vísitölu 0,7%) Afurðir stóriðju hækkuðu um 1,1% (0,4%), annar iðnaður hækkaði um 1,6% (0,3%) og matvæli hækkuðu um 0,9% (0,3%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 5,5% frá september 2017 til september 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 8,5%, sjávarafurðir hækkuðu um 3,8%, annar iðnaður hækkaði um 3,7% og matvæli hækkuðu um 3,4%.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,2% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 3,9%.
| Vísitala framleiðsluverðs í september 2018 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 202,5 | 1,6 | 1,6 | 5,5 | 
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 256,2 | 2,9 | 0,7 | 3,8 | 
| Stóriðja | 209,1 | 1,1 | 0,4 | 8,5 | 
| Matvæli | 177,6 | 0,9 | 0,2 | 3,4 | 
| Annar iðnaður | 146,5 | 1,6 | 0,3 | 3,7 | 
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 169,2 | 1,3 | 0,5 | 3,9 | 
| Útfluttar afurðir | 222,7 | 1,8 | 1,1 | 6,2 |