FRÉTT VERÐLAG 30. OKTÓBER 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,8% milli ágúst og september 2017. Sjávarafurðir hækkuðu um 1,7% (áhrif á vísitölu 0,5%),  afurðir stóriðju hækkuðu um 6,2% (1,9%), annar iðnaður hækkaði um 2,4% (0,5%) en matvæli lækkuðu um 0,4% (-0,1%)

Miðað við september 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,4%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 0,1%, annar iðnaður lækkað um 18,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 12,0% en matvæli lækkað um 2,8% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir hækkað um 2,7% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 8,8%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í september 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 192,0 2,8 2,8 -1,4
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 246,9 1,7 0,5 -0,1
Stóriðja 192,7 6,2 1,9 12,0
Matvæli 171,8 -0,4 -0,1 -2,8
Annar iðnaður 141,3 2,4 0,5 -18,3
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 162,8 0,7 0,2 -8,8
Útfluttar afurðir 209,7 4,1 2,6 2,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.