FRÉTT VERÐLAG 27. NÓVEMBER 2008

Vísitala framleiðsluverðs í október 2008 var 186,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 12,7% frá september. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 226,0 stig, sem er hækkun um 20,3% (vísitöluáhrif 6,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 249,1 stig, hækkaði um 14,7% (4,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 3,4% frá september (0,6%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 6,3% (1,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 3,1% (1,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 17,8% (11,6%).

Verðvísitölur eru nú birtar í fyrsta sinn fyrir ferskar afurðir steinbíts og þorsks aftur til mars 2007 og fyrir ferska ýsu aftur til nóvember 2007.

Frá október 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 61,4% og verðvísitala sjávarafurða um 80,4%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 101,5% en matvælaverð um 19,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í október 2008 var 17,4% hærra en í september og 74,5% hærra en í október 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.