Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,1% milli október og nóvember 2019. Annar iðnaður hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitölu 0,2%). Matvæli lækkuðu um 0,6% (-0,1%), Sjávarafurðir lækkuðu um 1,1% (-0,3%) á meðan afurðir stóriðju lækkuðu um 2,7% (-0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 3,3% frá nóvember 2018 til nóvember 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 6,6%, annar iðnaður hækkaði um 3,1%, matvæli hækkuðu um 1,7% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 15,9%.

Útfluttar afurðir lækkuðu um 5,6% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 0,8%.

Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 209,0 -1,1 -1,1 -3,3
Eftir atvinnugreinum  
Sjávarafurðir 297,5 -1,1 -0,3 6,6
Stóriðja 194,3 -2,7 -0,9 -15,9
Matvæli 181,2 -0,6 -0,1 1,7
Annar iðnaður 157,6 0,8 0,2 3,1
   
Eftir mörkuðum  
Innlend sala 174,2 -0,2 -0,1 0,8
Útfluttar afurðir 230,1 -1,6 -1,0 -5,6

Þessi frétt um vísitölu framleiðsluverðs er síðasta reglubundna fréttin um vísitöluna. Frá og með birtingu í janúar 2020 verður talnaefni uppfært án reglubundinna frétta. Birtingaráætlun Hagstofu Íslands fyrir árið 2020 hefur verið uppfærð til samræmis við þessa breytingu. Á útgáfudegi verður almenn tilkynning birt á vef Hagstofu Íslands um að talnaefni hafi verið uppfært og póstur sendur til áskrifenda

Talnaefni