FRÉTT VERÐLAG 22. DESEMBER 2016

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% milli október og nóvember 2016. Mestu áhrif til lækkunar hafði verð sjávarafurða sem lækkaði um 2,6% en á móti hækkuðu afurðir stóriðju um 2,3%.

Miðað við nóvember 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 7%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 10,4% og afurðir stóriðju um 8,1%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 8,9% á einu ári en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 2,4%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2016
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 190,1 -0,9 -0,9 -7,0
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 238,3 -2,6 -0,8 -10,4
Stóriðja 170,1 2,3 0,7 -8,1
Matvæli 176,2 -0,4 -0,1 2,4
Annar iðnaður 166,2 -3,4 -0,7 -7,1
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 175,5 -1,3 -0,4 -2,4
Útfluttar afurðir 198,8 -0,7 -0,5 -8,9


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.