FRÉTT VERÐLAG 03. JANÚAR 2008

Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2007 var 117,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 128,6 stig, sem er hækkun um 2,7% (vísitöluáhrif 1,0%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 126,5 stig, hækkaði um 2,3% (0,5%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,0% milli mánaða (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,4% frá október (-0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% (-0,4%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 2,3% (1,4%).

Frá nóvember 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,6%, verðvísitala sjávarafurða hefur lækkað um 0,8% og afurðir stóriðju um 14,3%. Matvælaverð hefur hækkað um 5,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í nóvember 2007 var 2,5% hærra en í október og 2,3% lægra en í nóvember 2006. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.