FRÉTT VERÐLAG 30. APRÍL 2018

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,7% milli febrúar og mars 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 3,4% (áhrif á vísitölu -1,1%), sjávarafurðir lækkuðu um 1,2% (-0,3%) og annar iðnaður lækkaði um 1,4% (-0,3%). Matvæli hækkuðu hins vegar tæplega um 0,1% (0,0%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 3,7% frá mars 2017 til mars 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 8,0%, verð sjávarafurða hækkað um 6,6% og matvæli hækkað um 0,9%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 4,7% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,4% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 1,5%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 192,9 -1,7 -1,7 3,7
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 242,0 -1,2 -0,3 6,6
Stóriðja 198,0 -3,4 -1,1 8,0
Matvæli 174,1 0,1 0,0 0,9
Annar iðnaður 139,9 -1,4 -0,3 -4,7
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 164,9 -0,3 -0,1 -1,5
Útfluttar afurðir 209,7 -2,6 -1,6 6,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.