FRÉTT VERÐLAG 28. APRÍL 2017

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,2% milli febrúar og mars 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 3,3% (áhrif á vísitölu -1,0%), annar iðnaður lækkaði um 3,1% (-0,7%) og matvæli lækkuðu um 0,3% (-0,1%). Afurðir stóriðju hækkuðu um 1,8% (0,6%).

Miðað við mars 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 7,1%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 12,9% og annar iðnaður lækkað um 15,7%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 2,2% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 7,8% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 5,5%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 186,1 -1,2 -1,2 -7,1
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 227,1 -3,3 -1,0 -12,9
Stóriðja 183,3 1,8 0,6 2,2
Matvæli 172,6 -0,3 -0,1 -0,9
Annar iðnaður 146,8 -3,1 -0,7 -15,7
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 167,4 -1,7 -0,6 -5,5
Útfluttar afurðir 197,0 -0,9 -0,6 -7,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.