Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,3% milli apríl og maí 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 2,5% (áhrif á vísitölu 0,6%), annar iðnaður hækkaði um 1,4% (0,3%), matvæli hækkuðu um 0,8% (0,2%) og afurðir stóriðju hækkuðu um 0,6% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 7,8% frá maí 2018 til maí 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 18,5%, annar iðnaður hækkaði um 12,7%, matvæli hækkuðu um 5,2% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 1%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 5,7%.

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
  Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
   
Vísitala framleiðsluverðs212,61,31,37,8
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir290,12,50,618,5
Stóriðja210,90,60,2-1,0
Matvæli182,60,80,25,2
Annar iðnaður153,31,40,312,7
Eftir mörkuðum 
Innlend sala172,80,70,25,7
Útfluttar afurðir237,41,61,18,9

Talnaefni