FRÉTT VERÐLAG 30. JÚNÍ 2017

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 3,6% milli apríl og maí 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 4,2% (áhrif á vísitölu -1,2%), afurðir stóriðju lækkuðu um 5,8% (-1,8%), annar iðnaður lækkaði um 2,9% (-0,6%) og matvæli hækkuðu um 0,1% (0,0%).

Miðað við maí 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 9,7%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,7% og annar iðnaður lækkað um 22,2%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 0,2% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 8,8% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,4%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 181,9 -3,6 -3,6 -9,7
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 226,2 -4,2 -1,2 -13,7
Stóriðja 177,7 -5,8 -1,8 -0,2
Matvæli 172,6 0,1 0,0 -2,0
Annar iðnaður 138,5 -2,9 -0,6 -22,2
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 160,0 -2,9 -1,0 -11,4
Útfluttar afurðir 194,6 -4,0 -2,6 -8,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.