FRÉTT VERÐLAG 29. JÚNÍ 2009

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2009 var 168,0 stig (4. fjórðungur 2005=100) og hækkaði um 2,4% frá apríl 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 216,1 stig, sem er hækkun um 3,7% (vísitöluáhrif 1,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 164,8 stig, hækkaði um 5,0% (1,6%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% frá apríl og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,9% (-0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 3,7% (2,5%).

Frá maí 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 13,9% og verðvísitala sjávarafurða um 33,9%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 12,6% en matvælaverð hækkað um 13,4%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3
Mars -1,6 -1,0 -5,2 -0,2 0,2 -2,4
Apríl 7,2 11,4 10,2 0,3 -0,2 10,7
Maí 2,4 3,7 5,0 0,2 -0,5 3,7

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6
Mars 11,6 19,2 -15,3 21,7 27,3 3,9
Apríl 12,5 28,6 -16,5 14,8 19,1 8,4
Maí 13,9 33,9 -12,6 13,4 15,7 12,0

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í maí 2009 var 2,9% hærra en í apríl 2009 en 47,5% hærra en í maí 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.