Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,2% milli maí og júní 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 4,4% (áhrif á vísitölu 1,0%), annar iðnaður hækkaði um 1,8% (0,4%) og afurðir stóriðju lækkuðu um 0,5% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 6,7% frá júní 2018 til júní 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 21,1%, annar iðnaður hækkaði um 13,2%, matvæli hækkuðu um 4,7% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 5,5%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 6,1%.

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
  Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
   
Vísitala framleiðsluverðs215,21,21,26,7
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir302,74,41,021,1
Stóriðja209,9-0,5-0,2-5,5
Matvæli182,2-0,20,04,7
Annar iðnaður156,01,80,413,2
Eftir mörkuðum 
Innlend sala174,10,80,36,1
Útfluttar afurðir240,91,50,96,9

Talnaefni