Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,3% á milli maí og júní 2018. Afurðir stóriðju hækkuðu um 4,2% (áhrif á vísitölu 1,5%), sjávarafurðir hækkuðu um 2,1% (0,5%), annar iðnaður hækkaði um 1,3% (0,3%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 11,7% frá júní 2017 til júní 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 27,9%, sjávarafurðir hækkað um 10,4% og matvæli hækkað um 1,0%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 0,5% á sama tímabili.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 17% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 2,6%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
| Vísitala framleiðsluverðs í júní 2018 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 201,7 | 2,3 | 2,3 | 11,7 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 250,0 | 2,1 | 0,5 | 10,4 |
| Stóriðja | 222,1 | 4,2 | 1,5 | 27,9 |
| Matvæli | 173,9 | 0,2 | 0,0 | 1,0 |
| Annar iðnaður | 137,8 | 1,3 | 0,3 | -0,5 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 164,2 | 0,4 | 0,1 | 2,6 |
| Útfluttar afurðir | 225,3 | 3,3 | 2,2 | 17,0 |

Talnaefni