Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,7% milli maí og júní 2017. Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,2% (áhrif á vísitölu -0,7%), matvæli lækkuðu um 0,2% (0,0%), sjávarafurðir hækkuðu um 0,1% (0,0%), og annar iðnaður hækkaði um 0,1% (0,0%).
Miðað við júní 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,2%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,8%, annar iðnaður lækkað um 22,8%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 1,4% og matvæli lækkað um 2,3% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 9,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,6%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
| Vísitala framleiðsluverðs í júní 2017 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 180,6 | -0,7 | -0,7 | -10,2 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 226,5 | 0,1 | 0,0 | -13,8 |
| Stóriðja | 173,7 | -2,2 | -0,7 | -1,4 |
| Matvæli | 172,2 | -0,2 | 0,0 | -2,3 |
| Annar iðnaður | 138,6 | 0,1 | 0,0 | -22,8 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 160,0 | 0,0 | 0,0 | -11,6 |
| Útfluttar afurðir | 192,5 | -1,1 | -0,7 | -9,5 |
