FRÉTT VERÐLAG 25. JÚLÍ 2011

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2011 var 218,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,5% frá maí 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 253,7 stig, sem er hækkun um 1,8% (vísitöluáhrif 0,6%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 266,5 stig, lækkaði um 1,6% (-0,6%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,1% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,6% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,7% (0,5%).

Miðað við júní 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 13,0% en verðvísitala sjávarafurða um 14,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 14,1% en matvælaverð hefur hækkað um 5,8%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2011 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2009 og 2010.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Júní -5,4 -1,1 -11,5 0,3 -0,5 -7,0
Júlí -3,3 -0,2 -8,2 0,4 -0,2 -4,2
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Júní 13,5 1,7 38,1 2,6 3,8 17,5
Júlí 6,1 0,1 17,8 2,5 2,3 7,8
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júní 2011 var 0,6% hærra en í maí 2011 og 2,5% hærra en í júní 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.