FRÉTT VERÐLAG 30. JÚLÍ 2009

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2009 var 169,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,1% frá maí 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 217,6 stig, sem er hækkun um 0,7% (vísitöluáhrif 0,4%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 169,2 stig, hækkaði um 2,7% (0,7%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,9% (0,1%) frá maí og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,4% (-0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,4% (0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,5% (1,0%).

Frá júní 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 11,0% og verðvísitala sjávarafurða um 25,6%. Á sama hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 13,3% en matvælaverð hefur hækkað um 14,2%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2009 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2007 og 2008.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3
Mars -1,6 -1,0 -5,2 -0,2 0,2 -2,4
Apríl 7,2 11,4 10,2 0,3 -0,2 10,7
Maí 2,4 3,7 5,0 0,2 -0,5 3,7
Júní 1,1 0,7 2,7 0,9 0,4 1,5

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6
Mars 11,6 19,2 -15,3 21,7 27,3 3,9
Apríl 12,5 28,6 -16,5 14,8 19,1 8,4
Maí 13,9 33,9 -12,6 13,4 15,7 12,0
Júní 11,0 25,6 -13,3 14,2 15,7 7,6

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júní 2009 var 2,7% hærra en í maí 2009 en 44,2% hærra en í júní 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.