FRÉTT VERÐLAG 30. JÚLÍ 2007
Vísitala framleiðsluverðs í júní 2007 var 118,2 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 119,7 stig, lækkaði um 1,0% (vísitöluáhrif -0,4%) og vísitala fyrir stóriðju var 143,3 stig, lækkaði um 1,3% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% (0,0%) milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,9% frá maí (0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% (0,3%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 0,7% (-0,4%).

Frá júní 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,8%; sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 4,5% og afurðir stóriðju um 14,8% en matvæli hafa hækkað um 2,3%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2007 byggir matið á niðurstöðum iðnaðarskýrslna fyrir árin 2005 og 2006.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7


Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.