Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,3% milli júní og júlí 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,2% (áhrif á vísitölu -0,7%), annar iðnaður hækkaði um 1,9% (0,4%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 9,0% frá júlí 2017 til júlí 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 22,6%, sjávarafurðir hækkað um 6,2% og matvæli hækkað um 0,8%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 0,5% á sama tímabili.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 13,5% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 1,2%.
| Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2018 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 201,1 | -0,3 | -0,3 | 9,0 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 249,7 | -0,1 | 0,0 | 6,2 |
| Stóriðja | 217,2 | -2,2 | -0,7 | 22,6 |
| Matvæli | 174,5 | 0,3 | 0,0 | 0,8 |
| Annar iðnaður | 140,4 | 1,9 | 0,4 | -0,5 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 164,6 | 0,3 | 0,1 | 1,2 |
| Útfluttar afurðir | 224,0 | -0,6 | -0,4 | 13,5 |