FRÉTT VERÐLAG 30. ÁGÚST 2011

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2011 var 218,4 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,2% frá júní 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 254,1 stig, sem er hækkun um 0,2% (vísitöluáhrif 0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 265,2 stig, lækkaði um 0,5% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,5% (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,8% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,5% (0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,2% (-0,1%).

Miðað við júlí 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 17,1% en verðvísitala sjávarafurða um 15,0%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 23,6% en matvælaverð hefur hækkað um 6,9%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Júlí -3,3 -0,2 -8,2 0,4 -0,2 -4,2
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Júlí 6,1 0,1 17,8 2,5 2,3 7,8
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júlí 2011 var 0,4% hærra en í júní 2011 og 3,4% hærra en í júlí 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.