FRÉTT VERÐLAG 28. ÁGÚST 2009

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2009 var 175,8 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 3,5% frá júní 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 220,7 stig, sem er hækkun um 1,4% (vísitöluáhrif 0,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 182,0 stig, hækkaði um 7,6% (2,5%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,5% (0,1%) frá júní og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,4% (0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,4%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 4,4% (3,1%).

Frá júlí 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,2% og verðvísitala sjávarafurða um 27,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 8,4% en matvælaverð hefur hækkað um 14,3%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3
Mars -1,6 -1,0 -5,2 -0,2 0,2 -2,4
Apríl 7,2 11,4 10,2 0,3 -0,2 10,7
Maí 2,4 3,7 5,0 0,2 -0,5 3,7
Júní 1,1 0,7 2,7 0,9 0,4 1,5
Júlí 3,5 1,4 7,6 0,5 1,2 4,4

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6
Mars 11,6 19,2 -15,3 21,7 27,3 3,9
Apríl 12,5 28,6 -16,5 14,8 19,1 8,4
Maí 13,9 33,9 -12,6 13,4 15,7 12,0
Júní 11,0 25,6 -13,3 14,2 15,7 7,6
Júlí 12,2 27,8 -8,4 14,3 13,6 10,2

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júlí 2009 var 1,0% hærra en í júní 2009 en 45,5% hærra en í júlí 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.