Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,0% milli desember 2018 og janúar 2019. Afurðir stóriðju lækkuðu um 1,9% (áhrif á vísitölu -0,6%), annar iðnaður lækkaði um 3,0% (-0,6%). Sjávarafurðir hækkuðu um 0,6% (0,1%) og matvæli hækkuðu um 0,6% (0,1%)

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 8,4% frá janúar 2018 til janúar 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 11,9%, afurðir stóriðju hækkuðu um 10,6%, annar iðnaður hækkaði um 4,5% og matvæli hækkuðu um 3,5% á sama tíma.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 11,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 3,0%.

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
  Vísitala Áhrif á Breyting frá
  4. ársf. 2005 = 100 % vísitölu % fyrra ári %
Vísitala framleiðsluverðs210,5-1,0-18,4
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir281,10,60,111,9
Stóriðja214,1-1,9-0,610,6
Matvæli179,50,60,13,5
Annar iðnaður150,3-3,0-0,64,5
Eftir mörkuðum 
Innlend sala171,0-1,5-0,53,0
Útfluttar afurðir235,1-0,8-0,511,3

Talnaefni