FRÉTT VERÐLAG 28. FEBRÚAR 2011

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2011 var 202,1 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 2,1% frá desember 2010. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 233,0 stig, sem er hækkun um 3,5% (vísitöluáhrif 1,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 247,3 stig, hækkaði um 2,2% (0,8%). Vísitölur fyrir matvæli og annan iðnað stóðu hvor tveggja í stað.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,3% (-0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 2,7% (2,2%).

Miðað við janúar 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 0,9% en verðvísitala sjávarafurða um 1,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 1,9% en matvælaverð hefur hækkað um 2,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Janúar 3,9 -1,6 11,3 0,5 1,1 4,8
Febrúar 0,8 -1,0 3,9 0,4 -0,3 1,2
Mars -2,7 0,7 -8,0 -0,5 0,5 -3,7
Apríl 2,5 -0,5 7,0 0,5 0,4 3,2
Maí 1,2 -1,9 6,4 0,1 -0,6 1,8
Júní -5,4 -1,1 -11,5 0,3 -0,5 -7,0
Júlí -3,3 -0,2 -8,2 0,4 -0,2 -4,2
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Janúar 18,1 4,5 40,9 2,5 6,6 21,7
Febrúar 29,8 20,5 67,8 3,2 3,9 41,9
Mars 28,4 22,6 62,8 2,9 4,3 40,0
Apríl 22,8 9,5 58,1 3,2 4,8 30,6
Maí 21,4 3,6 60,3 3,2 4,8 28,2
Júní 13,5 1,7 38,1 2,6 3,8 17,5
Júlí 6,1 0,1 17,8 2,5 2,3 7,8
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
Desember 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í janúar 2011 hækkaði um 1,9% frá desember 2010 en var 10,3% lægra en í janúar 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.