FRÉTT VERÐLAG 26. FEBRÚAR 2009

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2009 var 169,7 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 7,3% frá desember 2008. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 220,0 stig, sem er lækkun um 5,4% (vísitöluáhrif -1,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 172,2 stig, lækkaði um 17,0% (-5,0%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% frá desember (0,0%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,5% (-0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,1% (0,0%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 11,0% (-7,3%).

Frá janúar 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 39,2% og verðvísitala sjávarafurða um 62,7%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 31,1% en matvælaverð um 24,3%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
 

framleiðsluverðs

Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2


Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í janúar 2009 var 1,1% lægra en í desember 2008 en 71,0% hærra en í janúar 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Útgáfu heftis um vísitölu framleiðsluverðs í ritröð Hagtíðinda, sem koma átti út 11. mars 2009, hefur verið aflýst.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.