Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,5% milli janúar og febrúar 2019. Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,8% (áhrif á vísitölu -1,0%), sjávarafurðir lækkuðu um 1,7% (-0,4%), annar iðnaður lækkaði um 0,4% (-0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 5,6% frá febrúar 2018 til febrúar 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 12,8%, annar iðnaður hækkaði um 5,5%, matvæli hækkuðu um 3,0% á sama tíma og afurðir stóriðju hækkuðu um 1,5%,.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 7,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 2,4%.

Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
  Vísitala Áhrif á Breyting frá
  4. ársf. 2005 = 100 % vísitölu % fyrra ári %
Vísitala framleiðsluverðs207,3-1,5-1,55,6
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir276,4-1,7-0,412,8
Stóriðja208,0-2,8-1,01,5
Matvæli179,3-0,10,03,0
Annar iðnaður149,7-0,4-0,15,5
Eftir mörkuðum 
Innlend sala169,3-1,0-0,42,4
Útfluttar afurðir230,8-1,8-1,17,3

Ársbreytingar

Talnaefni