FRÉTT VERÐLAG 29. MARS 2017

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,4% milli janúar og febrúar 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 3,9% (áhrif á vísitölu -1,2%), annar iðnaður lækkaði um 1,7% (-0,4%) og matvæli lækkuðu um 0,4% (-0,1%). Afurðir stóriðju hækkuðu um 0,6% (0,2%).

Miðað við febrúar 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,5%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 11,0% og annar iðnaður lækkað um 13,1%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,4% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,3%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 188,3 -1,4 -1,4 -5,5
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 234,9 -3,9 -1,2 -11,0
Stóriðja 180,1 0,6 0,2 2,8
Matvæli 173,1 -0,4 -0,1 0,0
Annar iðnaður 151,4 -1,7 -0,4 -13,1
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 170,2 -0,3 -0,1 -3,3
Útfluttar afurðir 198,8 -1,9 -1,3 -6,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.