Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,3% milli nóvember og desember 2017. Sjávarafurðir hækkuðu um 1,9% (áhrif á vísitölu 0,5%) en afurðir stóriðju lækkuðu um 0,7% (-0,2%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 2,4% frá desember 2016 til desember 2017. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 3,8% en annar iðnaður lækkaði um 8,9%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 11,5% en matvæli lækkað um 0,7% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,1% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 4,3%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
| Vísitala framleiðsluverðs í desember 2017 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 194,2 | 0,3 | 0,3 | 2,4 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 246,3 | 1,9 | 0,5 | 3,8 |
| Stóriðja | 196,6 | -0,7 | -0,2 | 11,5 |
| Matvæli | 173,2 | 0,2 | 0,0 | -0,7 |
| Annar iðnaður | 143,8 | 0,1 | 0,0 | -8,9 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 165,0 | 0,1 | 0,0 | -4,3 |
| Útfluttar afurðir | 211,7 | 0,5 | 0,3 | 6,1 |
