FRÉTT VERÐLAG 31. JANÚAR 2017

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,3% milli nóvember og desember 2016. Afurðir stóriðju hækkuðu um 3,6% (Áhrif á vísitölu 1,1%) en annar iðnaður lækkaði um 5% (-1,1%). Matvæli lækkuðu um 1% (-0,2%) og sjávarafurðir lækkuðu um 0,4% (-0,1%).

Miðað við desember 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 6,1%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 11,9% og annar iðnaður lækkað um 11,0%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 7,3% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,2%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2016
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 189,6 -0,3 -0,3 -6,1
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 237,3 -0,4 -0,1 -11,9
Stóriðja 176,3 3,6 1,1 -0,3
Matvæli 174,4 -1,0 -0,2 0,7
Annar iðnaður 158,0 -5,0 -1,1 -11,0
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 172,5 -1,7 -0,6 -3,2
Útfluttar afurðir 199,6 0,4 0,3 -7,3


Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.