FRÉTT VERÐLAG 30. JANÚAR 2008

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2007 var 119,5 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 131,2 stig, sem er hækkun um 2,0% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 132,4 stig, hækkaði um 4,6% (1,0%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% frá nóvember (0,0%) en vísitala fyrir annan iðnað um 1,7% (0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% (0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 3,2% (2,0%).

Frá desember 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,2%, verðvísitala sjávarafurða hefur hækkað um 0,7% og afurðir stóriðju lækkað um 12,6%. Matvælaverð hefur hækkað um 3,6%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í desember 2007 var 1,4% hærra en í nóvember og 3,3% lægra en í desember 2006. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.