FRÉTT VERÐLAG 30. MAÍ 2007

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2007 er 121,3 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 126,4 stig og hækkaði um 0,4% (vísitöluáhrif 0,2%) og vísitala fyrir stóriðju er 147,0 stig, lækkaði um 3,6% (-0,7%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% (0,0%) en vísitala fyrir annan iðnað var óbreytt frá mars.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,1% (0,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 0,9% (-0,6%).

Frá apríl 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 3,9%; sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 6,7%, afurðir stóriðju um 1,2% og matvæli um 4,9%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Sjávarafurðir Afurðir  Matvæli Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs   stóriðju   sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9

 

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Sjávarafurðir Afurðir  Matvæli Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs   stóriðju   sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.