FRÉTT VERÐLAG 28. SEPTEMBER 2018

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% milli júlí og ágúst 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 4,8% (áhrif á vísitölu -1,6%). Sjávarafurðir lækkuðu um 0,3% (-0,1%), annar iðnaður hækkaði um 2,7% (0,6%) og matvæli hækkuðu um 0,8% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 6,7% frá ágúst 2017 til ágúst 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 14,0%. Annar iðnaður hækkaði um 4,5% sjávarafurðir hækkuðu um 2,6% og matvæli hækkuðu um 2,0%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,6% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 3,3%.

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 199,3 -0,9 -0,9 6,7
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 249,0 -0,3 -0,1 2,6
Stóriðja 206,8 -4,8 -1,6 14,0
Matvæli 176,0 0,8 0,2 2,0
Annar iðnaður 144,3 2,7 0,6 4,5
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 167,0 1,5 0,5 3,3
Útfluttar afurðir 218,8 -2,3 -1,4 8,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.