Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% milli júlí og ágúst 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 4,8% (áhrif á vísitölu -1,6%). Sjávarafurðir lækkuðu um 0,3% (-0,1%), annar iðnaður hækkaði um 2,7% (0,6%) og matvæli hækkuðu um 0,8% (0,2%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 6,7% frá ágúst 2017 til ágúst 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 14,0%. Annar iðnaður hækkaði um 4,5% sjávarafurðir hækkuðu um 2,6% og matvæli hækkuðu um 2,0%.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,6% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 3,3%.
| Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2018 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
| 4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 199,3 | -0,9 | -0,9 | 6,7 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 249,0 | -0,3 | -0,1 | 2,6 |
| Stóriðja | 206,8 | -4,8 | -1,6 | 14,0 |
| Matvæli | 176,0 | 0,8 | 0,2 | 2,0 |
| Annar iðnaður | 144,3 | 2,7 | 0,6 | 4,5 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 167,0 | 1,5 | 0,5 | 3,3 |
| Útfluttar afurðir | 218,8 | -2,3 | -1,4 | 8,6 |