FRÉTT VERÐLAG 29. SEPTEMBER 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,2% milli júlí og ágúst 2017. Sjávarafurðir hækkuðu um 3,3% (áhrif á vísitölu 0,9%),  afurðir stóriðju hækkuðu um 2,4% (0,8%), annar iðnaður lækkaði um 2,2% (-0,4%) og matvæli lækkuðu um 0,3% (-0,1%).

Miðað við ágúst 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 6,0%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 4,9%, annar iðnaður lækkað um 21,7%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 3,5% en matvæli lækkað um 2,5% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 3,7% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 10,3%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með september 2017 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2015 og 2016.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 186,7 1,2 1,2 -6,0
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 242,7 3,3 0,9 -4,9
Stóriðja 181,4 2,4 0,8 3,5
Matvæli 172,5 -0,3 -0,1 -2,5
Annar iðnaður 138,0 -2,2 -0,5 -21,7
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 161,7 -0,6 -0,2 -10,3
Útfluttar afurðir 201,4 2,1 1,4 -3,7

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.