FRÉTT VERÐLAG 30. SEPTEMBER 2015

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2015 var 211,6 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 272,0 stig, sem er lækkun um 2,9% (vísitöluáhrif -0,9%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 201,7 stig, lækkaði um 4,3% (-1,4%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,2% (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað stóð í stað milli mánaða.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% (0,3 %) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um
3,4% (-2,4%).

Miðað við ágúst 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,5% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 3,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 4,4% en verð á matvælum hækkað um 2,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Ágúst 3,5 2,4 7,7 0,1 0,5 4,6
September 1,7 -1,8 4,8 -0,4 1,4 1,9
Október 1,2 2,0 0,7 0,7 0,7 1,3
Nóvember 0,6 1,5 0,2 -0,3 -0,2 0,8
Desember 3,3 2,1 6,5 0,2 0,9 4,2
2015            
Janúar 0,2 1,0 -0,6 -0,2 -0,1 0,3
Febrúar -2,0 -1,9 -4,2 -0,5 0,2 -2,8
Mars 2,4 1,6 5,0 -0,3 0,2 3,3
Apríl -0,8 0,7 -3,3 0,0 0,3 -1,2
Maí 0,0 -0,9 -0,5 0,7 1,2 -0,4
Júní -0,4 1,0 -1,1 0,2 -0,4 -0,3
Júlí -2,5 1,0 -6,6 1,4 -0,7 -3,2
Ágúst -2,1 -2,9 -4,3 1,2 0,8 -3,4
Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Ágúst 5,6 6,0 7,0 2,5 4,3 6,1
September 4,4 2,5 8,5 1,6 2,9 4,9
Október 6,5 4,1 12,1 0,9 3,9 7,4
Nóvember 6,1 4,8 9,1 0,5 4,2 6,8
Desember 12,2 9,6 24,9 1,1 2,9 15,6
2015            
Janúar 14,2 14,0 24,8 0,5 3,3 18,3
Febrúar 12,1 13,2 22,0 0,4 1,2 16,0
Mars 15,9 13,3 31,5 0,0 2,5 20,9
Apríl 14,4 11,2 28,2 -0,7 2,2 18,9
Maí 12,5 9,6 18,9 0,0 5,4 15,0
Júní 11,0 9,2 20,2 0,3 2,3 14,1
Júlí 7,4 8,8 7,5 1,5 4,0 8,4
Ágúst 1,5 3,3 -4,4 2,7 4,3 0,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.