Vísitala byggingarkostnaðar í júní 2025 er 125,7 stig (desember 2021 = 100) og hækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Kostnaður við innflutt efni dróst saman um 0,1% en kostnaður við innlent efni jókst hins vegar um 0,4%. Þá jókst launakostnaður um 0,1%. Talnaefni Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang byggingarvisitala@hagstofa.is Deila Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.