FRÉTT VERÐLAG 18. OKTÓBER 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,6 stig (2005=100) í september sl. og var óbreytt frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 106,9 stig, hækkaði um 0,7% frá ágúst.

Frá september 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,9% að meðaltali í ríkjum EES, 1,7% á evrusvæðinu og 6,1% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,1% á Íslandi og 5,9% í Lettlandi og Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan 0,8% í Finnlandi og 1,0% í Þýskalandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Ágúst 2005 til ágúst 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.