FRÉTT VERÐLAG 17. NÓVEMBER 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,8 stig (2005=100) í október sl. og hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 107,1 stig, hækkaði um 0,2% frá september.

Frá október 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,8% að meðaltali í ríkjum EES, 1,6% á evrusvæðinu og 5,8% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,3% í Ungverjalandi og 5,8% á Íslandi. Minnst var verðbólgan 0,6% í Lúxemborg og 0,8% í Tékklandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) September 2005 til september 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.