FRÉTT VERÐLAG 17. NÓVEMBER 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 118,9 stig (1996=100) í október sl. og hækkaði um 0,3% frá september. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 131,5 stig, hún hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.

Frá október 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES, 2,5% á evrusvæðinu og 1,5% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,7% í Lettlandi, 5,0% í Lúxemborg og 4,5% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,8%  í Finnlandi, 0,9% í Svíþjóð og 1,5% á Íslandi og í Hollandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) September 2004 - september 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.