FRÉTT VERÐLAG 19. DESEMBER 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 118,7 stig (1996=100) í nóvember sl. og lækkaði um 0,2% frá október. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 131,0 stig, hún lækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði.

Frá nóvember 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,3% á evrusvæðinu og 1,1% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,5% í Lettlandi, 4,3% á Möltu og 4,0% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 1,0%  í Finnlandi og 1,1% á Íslandi og í Póllandi.


Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Október 2004 - októberr 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.